11/21/2004
Ég fékk bréf frá Rússlandi í nótt. Ég fékk þetta umslag, og þegar ég opnaði umslagið birtist veskið hans pabba. Þetta var tákn í draumi. Veskið hans pabba er úr svörtu leðri, ílangt og með allskonar leynihólfum og göngum...
Hvernig veit ég það? Ég hef ráfað þar um.
Veskið hans pabba gleymdist semsagt í Rússlandi og var sent til mín, og þetta var ábending um að ég ætti að skrifta og fá syndaaflausn á blogginu mínu.
Svo voru mál með vexti að þegar ég var ungur, svona 12-17 ára, hafði ég mjög takmarkaða innkomu peningalega séð. Ég fékk jú húsaskjól, næringu og allt sem ég þurfti og vasapeninga að auki. En einhverntíman fann ég fyrir svo miklum fjárhagslegum þrengslum, e.t.v. átti ég ekki fyrir vídeóspólu og blandi í poka, að ég tók mig til eina nóttina þegar allir voru farnir að sofa og læddist á tánum upp brakandi stiga. Uppúr kjallaranum og upp á miðhæðina, þar sem veskið hans pabba lá hreyfingalaust á kommóðu, í myrkrinu. Í minningunni var ég eins og kanína risin upp frá dauða, hokinn í baki með loppurnar dregnar upp að bringu. Þannig stal ég mínum fyrsta pening.
Þetta voru svosem ekki mikil tímamót, enda höfðum við systir mín stundað það í mörg ár að leita uppi smápeninga hér og þar, og kannski í botninum á veskjum foreldra okkar. En þessi þjófnaður minn var öðruvísi að því leitinu til, að ég tók seðil vísvitandi. Ég held það hafi verið 500 kall.
Með seðilinn í höndum hljóp ég niður í kjallara, nær yfirbugaður af adrenalíni og eftirsjá, en þó með þessa sérstöku mammons-gleði sem athafnaskáld finna oft fyrir. Ég sór við sjálfan mig að gera þetta aldrey aftur.
En spillingin gagntók mig. Fyrst ég hafði gert þetta einusinni, gat ég gert það oftar. Þegar lúxusvandamál tóku að herja á mig sem ungling, og ég sá ekki fram á að geta brauðfætt mig á poppi og kóki í næstu bíóferð, þá neyddist ég til að leita til veskisins. Svarta leðurveskisins sem er nú svo greipt í huga mér að mig dreymir um það.
Já, spillingin getur verið svo lúmsk. Þegar ég var búinn að venjast því að stela 500 köllum, náði ég þeim þroska að geta stolið 1000 köllum kinnroðalaust. Það gerði mér alsekki erfitt fyrir að seðlarnir í veskinu hans pabba voru stundum svo margir, að ég var viss um að hann ætti ekki aura sinna tal. 1000 kallarnir og 500 kallarnir voru nú týndir upp eins og krækiber, og ekki leið á löngu fyrr en ég stal mínum fyrsta 5000 kalli.
Þá hélt ég að toppnum væri náð. 5000 kall, aldrey aftur! En viti menn, 5000 karlar geta líka orðið daglegt brauð.
Þannig er hluti af minni afbrotasögu. Ég gerðist sekur um mannrán á dauðum forsetum og biskupum úr veskinu hans pabba.
Mig grunaði alltaf að pabbi vissi hálfpartinn um þetta alltsaman, og hann væri á vissan hátt samsekur að láta peningana sína liggja á glámbekk. Því fékk ég sjokk einn daginn, þegar ég gerðist svo kræfur að lauma 100 kalli upp úr veskinu hans á meðan mamma og pabbi voru inni í eldhúsi, og ég gripinn glóðvolgur að stela aumum 100 kalli. En pabbi varð ævareiður þegar hann sá mig, stórhneykslaður á þessu glæpaverki. Allt þetta fjaðrafok yfir skitnum 100 kalli?
Þá fékk spillingin og djöfullinn inni í mér sálfræðilegan kinnhest, og þessir syndalestir héldu sig tilbaka í nokkurn tíma, þar til seinna þeir byrjuðu að grassera aftur.
Ég ætlaði að bíða með þessa uppljóstrun þar til pabbi væri kominn á elliheimili og í mína forsjá, en táknið í draumnum sagði ''fáðu syndaaflausn nú, játaðu skammir þínar!".
Í dag er ég náttúrulega endurfædd og hrein sál, og þar sem ég veit að pabbi les ekki þessa bloggsíðu bið ég mömmu um að vera ekkert að minnast á þetta frekar en hún vill. Þannig er það gert í kaþólskum kirkjum!
Blog Archive
-
►
2007
(3)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
04/22 - 04/29
(1)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
2005
(13)
- ► 02/13 - 02/20 (2)
- ► 02/06 - 02/13 (2)
- ► 01/23 - 01/30 (2)
- ► 01/16 - 01/23 (2)
- ► 01/09 - 01/16 (2)
-
▼
2004
(94)
- ► 12/26 - 01/02 (2)
- ► 12/12 - 12/19 (2)
- ► 12/05 - 12/12 (3)
- ▼ 11/21 - 11/28 (3)
- ► 11/14 - 11/21 (2)
- ► 10/31 - 11/07 (2)
- ► 10/03 - 10/10 (3)
- ► 09/26 - 10/03 (2)
- ► 09/19 - 09/26 (2)
- ► 09/12 - 09/19 (2)
- ► 08/29 - 09/05 (3)
- ► 08/22 - 08/29 (1)
- ► 07/04 - 07/11 (1)
- ► 06/27 - 07/04 (1)
- ► 06/20 - 06/27 (2)
- ► 06/13 - 06/20 (2)
- ► 06/06 - 06/13 (3)
- ► 05/30 - 06/06 (2)
- ► 05/16 - 05/23 (2)
- ► 05/09 - 05/16 (2)
- ► 05/02 - 05/09 (2)
- ► 04/25 - 05/02 (2)
- ► 04/18 - 04/25 (2)
- ► 04/11 - 04/18 (2)
- ► 04/04 - 04/11 (2)
- ► 03/28 - 04/04 (2)
- ► 03/21 - 03/28 (1)
- ► 03/14 - 03/21 (3)
- ► 03/07 - 03/14 (3)
- ► 02/29 - 03/07 (3)
- ► 02/22 - 02/29 (5)
- ► 02/15 - 02/22 (2)
- ► 02/08 - 02/15 (3)
- ► 02/01 - 02/08 (3)
- ► 01/25 - 02/01 (3)
- ► 01/18 - 01/25 (3)
- ► 01/11 - 01/18 (4)
- ► 01/04 - 01/11 (1)
-
►
2003
(52)
- ► 12/21 - 12/28 (2)
- ► 12/14 - 12/21 (2)
- ► 12/07 - 12/14 (4)
- ► 11/30 - 12/07 (3)
- ► 11/23 - 11/30 (2)
- ► 11/16 - 11/23 (3)
- ► 11/09 - 11/16 (5)
- ► 11/02 - 11/09 (5)
- ► 10/26 - 11/02 (5)
- ► 10/19 - 10/26 (4)
- ► 10/12 - 10/19 (5)
- ► 10/05 - 10/12 (4)
- ► 09/28 - 10/05 (2)
- ► 09/21 - 09/28 (3)
- ► 09/14 - 09/21 (3)
0 comments:
Sendu inn athugasemd