11/27/2004
Sú var tíðin að Hera litla tók mark á mér. En nú er ég bara bull í hennar augum. Ég man að einusinni hafði hún blygðunarkennd og kunni að skammst sín. Í dag er því öðruvísi farið. Í gamla daga ef ég skammaði hana lagði hún skottið á milli lappanna og horfði undirleit á mig þar til hún bræddi mitt reiða hjarta og ég byrjaði að elska hana á ný.
Ef hún stalst í ruslatunnuna í eldhúsinu að næturþeli, þá þorði hún ekki fyrir sitt litla líf að stinga snoppunni þangað inn daginn eftir, henni óaði við að sjá vettvang glæpsins og hvaða ósköpum hún hafði ollið. Þá hafði hún gert það sko, að tosa ruslapokann undan vaskinum, tæta hann í sundur og éta allt sem ætilegt var.
Hún vissi nákvæmlega hvað var synd, og hvað var dyggð. Maður þurfti ekki annað en nefna orðið "rusl", þá fór hún í steik og faldi andlitið undir loppunum.
En því er ekki að skipta í dag, ónei. Hún er orðin spillt gömul kerling sem kallar ekkert ömmu sína. Hún veit nákvæmlega hversu langt hún má ganga og fetar jafnan á manns fínustu taugum.
Í gær t.d. sat ég við sjónvarpið og heyrði Heru trampa niður stigann sem liggur í kjallarann. Svo leið og beið og Hera trampaði upp stigann með smjattandi munn. Þá vissi ég strax hvað hafði átt sér stað: hún hafði étið súkkúlaðið mitt! Ég þaut því upp, skipaði henni að koma með mér niður og ætlaði sko að húðskamma hana.
Niðri benti ég með vísifringri á diskinn sem súkkúlaðið hafði legið á og öskraði "HVAR ER SÚKKÚLAÐIÐ?!"
Hera mændi bara á mig með gleðiblik í augum og dillaði skottinu. Því næst fann ég nammibréfið í tætlum á gólfinu, tók það upp, otaði framan í hana og öskraði enn hærra "HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA HA?! AÐ ÉTA BARA SÚKKÚLAÐI SEM ÞÚ ÁTT EKKI?!".
En það var alltaf sama sagan, hún tók ekkert mark á mér frekar en áttræð kona tæki mark á fimm ára strákling með svefngalsa. Fram og aftur sveiflaðist skottið!
Já, Hera er orðin gömul. Ég verð að sætta mig við að hún er eldri en ég og lífsreyndari, í þeim skilningi að vera hundur.
Hún er með gigt, sí-nöldrandi og þrjósk eins og jarðaber.
Núna rétt áðan hleypti ég henni út í garð, en hún sneri ekki aftur. Ég kallaði út í myrkrið "Hera bera, komm" en ekkert svar. Ég hljóp uppfyrir hús og út á götu til að sjá hvort hún væri nokkuð að fremja sjálfsmorð. En hún var bara týnd og tröllum gefin.
Ég smellti mér því í skóna og þræddi garða nágrannanna, því hún er vís til að standa á beit í fuglafóðri, ætluðu svöngum þröstum. En hvergi var Hera.
Þá skundaði ég í öngum mínum út á götu aftur, upp í Hjallaselið og skimaði hausnum í allar áttir. Jú þarna var hún, fjarska langt í burtu. Ég kom auga á gigtveika rassinn hennar sveiflast til og frá þar sem hún tiplaði áfram úti á miðri götu. Hún var á leiðinni uppí Seljahlíð, sem er húsaþyrping bleikra elliheimila.
Fyrir mér má hún alveg innrita sig þar. Þá fengi hún að minnsta kosti heimilishjálp, kæruleysispillur og heilt rúm til að sofa í.
Blog Archive
-
►
2007
(3)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
04/22 - 04/29
(1)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
2005
(13)
- ► 02/13 - 02/20 (2)
- ► 02/06 - 02/13 (2)
- ► 01/23 - 01/30 (2)
- ► 01/16 - 01/23 (2)
- ► 01/09 - 01/16 (2)
-
▼
2004
(94)
- ► 12/26 - 01/02 (2)
- ► 12/12 - 12/19 (2)
- ► 12/05 - 12/12 (3)
- ▼ 11/21 - 11/28 (3)
- ► 11/14 - 11/21 (2)
- ► 10/31 - 11/07 (2)
- ► 10/03 - 10/10 (3)
- ► 09/26 - 10/03 (2)
- ► 09/19 - 09/26 (2)
- ► 09/12 - 09/19 (2)
- ► 08/29 - 09/05 (3)
- ► 08/22 - 08/29 (1)
- ► 07/04 - 07/11 (1)
- ► 06/27 - 07/04 (1)
- ► 06/20 - 06/27 (2)
- ► 06/13 - 06/20 (2)
- ► 06/06 - 06/13 (3)
- ► 05/30 - 06/06 (2)
- ► 05/16 - 05/23 (2)
- ► 05/09 - 05/16 (2)
- ► 05/02 - 05/09 (2)
- ► 04/25 - 05/02 (2)
- ► 04/18 - 04/25 (2)
- ► 04/11 - 04/18 (2)
- ► 04/04 - 04/11 (2)
- ► 03/28 - 04/04 (2)
- ► 03/21 - 03/28 (1)
- ► 03/14 - 03/21 (3)
- ► 03/07 - 03/14 (3)
- ► 02/29 - 03/07 (3)
- ► 02/22 - 02/29 (5)
- ► 02/15 - 02/22 (2)
- ► 02/08 - 02/15 (3)
- ► 02/01 - 02/08 (3)
- ► 01/25 - 02/01 (3)
- ► 01/18 - 01/25 (3)
- ► 01/11 - 01/18 (4)
- ► 01/04 - 01/11 (1)
-
►
2003
(52)
- ► 12/21 - 12/28 (2)
- ► 12/14 - 12/21 (2)
- ► 12/07 - 12/14 (4)
- ► 11/30 - 12/07 (3)
- ► 11/23 - 11/30 (2)
- ► 11/16 - 11/23 (3)
- ► 11/09 - 11/16 (5)
- ► 11/02 - 11/09 (5)
- ► 10/26 - 11/02 (5)
- ► 10/19 - 10/26 (4)
- ► 10/12 - 10/19 (5)
- ► 10/05 - 10/12 (4)
- ► 09/28 - 10/05 (2)
- ► 09/21 - 09/28 (3)
- ► 09/14 - 09/21 (3)
0 comments:
Sendu inn athugasemd