1/26/2005
Þegar undir skörðum mána / kulið feykir dánu laufi / mun ég eiga þig að rósu.
hu hu humm. Einusinni vildi ég ekki hafa teljara á síðunni minni, afþví ég vildi ekki vita hversu fáir læsu. En eftir því sem innihald síðunnar varð æ meira innihaldslaust blaður, þá setti ég teljara upp og komst að því að 25 innlit eiga sér stað daglega. Ég bar mig saman við teljarann hans Braga Bergþórssonar, og hann fær um 75 á dag minnir mig. Ég fékk minnimáttarkennd, hvað hefur hann sem ég hef ekki? Svo komst ég að því: hann hefur myndir. Sjálfsálitið mitt getur huggað sig og blekkt við þá tilhugsun, að Bragi sé með fullt af myndum á síðunni sinni sem annað fólk linkar á, og í hvert skipti sem einhver skoðar mynd þá fær Bragi það skráð sem flettingu. Segjum það.
En Gaui setti líka upp teljara, og varð fyrir vonbrigðum með innlitin. "Bara fimmtán á dag, mér finnst það glaaaatað". En það er ekki fjöldi gesta sem skiptir máli, heldur gæði lesandans. Og þar sem ég efast ekki um að þú sért eðalmanneskja, elsku besti lesandinn minn, þá hef ég engar áhyggjur. En þó að þú sért lesandi í karlkyni og ég tali við þig sem slíkan, þýðir það ekki endilega að ég sé ekki að tala við þig, kona mín góð! Því þú ert yndisleg kona, með tvö brjóst og læri. Þú veldur hungri hjá körlum!
Og þó ég tali við þig sem konu, þýðir það ekki að þú sért ekki karl. Því innra með hverjum karli býr sál, og sálin er kynlaus, því sálin er andi guðs sem er hvorki karl né kona. Það sést í augunum, þegar ég horfi djúpt í augu þín, og trúðu mér ég er að horfa núna þó ekki sjáirðu mig. Ég er inni í skjánum, bakvið fosfórið. Ó, augu þín, elsku bróðir, eru svo kynlaus. Ég ætti í raun að ávarpa þig í hvorugkyni elsku hjartans lesyndið mitt!
En til hvers þetta ljóð í byrjun færslunnar? Ástæðan er lögmál bloggstílfræðinnar: Gott blogg skal ávalt byrja á góðri setningu, því fólki sem leiðist kíkir á sama bloggið oft á dag, dag eftir dag. Vond upphafssetning á bloggi sem sjaldan er uppfært, getur hreinlega verið mannskemmandi.
Og af hverju þá ekki að byrja bloggið sitt á einni fegurstu orðaröð íslenskrar tungu, þessu ljóði eftir Stefán Hörð Grímsson úr bókinni Svartálfadans? Lestu nú ljóðið aftur ljúfi kúturinn minn, dúfan mín!
Blog Archive
-
►
2007
(3)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
04/22 - 04/29
(1)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
▼
2005
(13)
- ► 02/13 - 02/20 (2)
- ► 02/06 - 02/13 (2)
- ▼ 01/23 - 01/30 (2)
- ► 01/16 - 01/23 (2)
- ► 01/09 - 01/16 (2)
-
►
2004
(94)
- ► 12/26 - 01/02 (2)
- ► 12/12 - 12/19 (2)
- ► 12/05 - 12/12 (3)
- ► 11/21 - 11/28 (3)
- ► 11/14 - 11/21 (2)
- ► 10/31 - 11/07 (2)
- ► 10/03 - 10/10 (3)
- ► 09/26 - 10/03 (2)
- ► 09/19 - 09/26 (2)
- ► 09/12 - 09/19 (2)
- ► 08/29 - 09/05 (3)
- ► 08/22 - 08/29 (1)
- ► 07/04 - 07/11 (1)
- ► 06/27 - 07/04 (1)
- ► 06/20 - 06/27 (2)
- ► 06/13 - 06/20 (2)
- ► 06/06 - 06/13 (3)
- ► 05/30 - 06/06 (2)
- ► 05/16 - 05/23 (2)
- ► 05/09 - 05/16 (2)
- ► 05/02 - 05/09 (2)
- ► 04/25 - 05/02 (2)
- ► 04/18 - 04/25 (2)
- ► 04/11 - 04/18 (2)
- ► 04/04 - 04/11 (2)
- ► 03/28 - 04/04 (2)
- ► 03/21 - 03/28 (1)
- ► 03/14 - 03/21 (3)
- ► 03/07 - 03/14 (3)
- ► 02/29 - 03/07 (3)
- ► 02/22 - 02/29 (5)
- ► 02/15 - 02/22 (2)
- ► 02/08 - 02/15 (3)
- ► 02/01 - 02/08 (3)
- ► 01/25 - 02/01 (3)
- ► 01/18 - 01/25 (3)
- ► 01/11 - 01/18 (4)
- ► 01/04 - 01/11 (1)
-
►
2003
(52)
- ► 12/21 - 12/28 (2)
- ► 12/14 - 12/21 (2)
- ► 12/07 - 12/14 (4)
- ► 11/30 - 12/07 (3)
- ► 11/23 - 11/30 (2)
- ► 11/16 - 11/23 (3)
- ► 11/09 - 11/16 (5)
- ► 11/02 - 11/09 (5)
- ► 10/26 - 11/02 (5)
- ► 10/19 - 10/26 (4)
- ► 10/12 - 10/19 (5)
- ► 10/05 - 10/12 (4)
- ► 09/28 - 10/05 (2)
- ► 09/21 - 09/28 (3)
- ► 09/14 - 09/21 (3)
0 comments:
Sendu inn athugasemd