2/07/2005
Jájá.
Í morgun vaknaði ég eftir 12 tíma svefn með holdris sökum hlandóþols og gekk hausþungur inn á klósett. Þar náði ég að lyfta setunni og pissa. Ekki hélt ég um typpið á meðan, afþví ég er einstaklega hittinn maður. Fékk mér vatnssopa til hressingar og vonaði á leiðinni til baka, að ég mundi verða hress fljótlega og komast á ról. Það gekk ekki eftir, sobbnaði um leið og ég lagðist á ný, þrátt fyrir að hafa kveikt á lampa til að búa til meiri svona "það er kominn dagur" stemningu.
En mig dreymdi mikla stórslysadrauma á skipum, bæði ryðdöllum og trillum sem brunuðu hvor framhjá öðrum, en líka í stórum járnrútum sem þeyttust eftir bröttum fjallvegum. Svo fékk ég gefins þrjár rúðuþurrkur. En hvað um það? Það var aldeilis gaman.
Skrítnast fannst mér þó vera þetta drauminnskot; ég var að tala við einhvern og horfa á sjónvarp. Svo steig Ragnheiður Gröndal á svið, og ég fór að gráta. Svo steig hún burt, kom aftur og aftur fór ég að gráta beisklega. Svona yndislegum gráti. Gráti þar sem gleði heltekur manninn yfir því að hann sé tilfinningavera yfir höfuð. Þá sagði ég við sessunautinn "Þetta er svo fallegt. Ég fer alltaf að gráta þegar ég sé Ragnheiði Gröndal".
Eitthvað tók ég að ranka við mér þremur tímum seinna, um tvö e.h. Þegar ég loks fór að hreyfa mig eins og snákur niður úr rúminu, löturhægt og varlega, nuddaði stírurnar þá fann ég!! Ég var með heimsins stærstu stírur. Alveg á við borgarísjaka, í því hlutfalli ef augun væru litlar tjarnir. Drykklöng stund fór í að toga stírurnar út úr augntóftunum, þær lágu svo djúpt.
Lesandi góður hlustaðu nú vel á! Stírur eru einmitt storknuð tár, og bendir þetta eindregið til þess að ég hafi raunverulega grátið í svefni. Í draumi.
En nú þykist ég heyra þig spyrja, kæri lesandi: "hvar voru rúðuþurrkarnar? Ha?"
Það veit enginn. Hefði verið praktískara segi ég nú bara, mig vantar einmitt rúðuþurrkur á bílinn hennar Sollubollu. Tilviljun? Nei.
Blog Archive
-
►
2007
(3)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
04/22 - 04/29
(1)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
▼
2005
(13)
- ► 02/13 - 02/20 (2)
- ▼ 02/06 - 02/13 (2)
- ► 01/23 - 01/30 (2)
- ► 01/16 - 01/23 (2)
- ► 01/09 - 01/16 (2)
-
►
2004
(94)
- ► 12/26 - 01/02 (2)
- ► 12/12 - 12/19 (2)
- ► 12/05 - 12/12 (3)
- ► 11/21 - 11/28 (3)
- ► 11/14 - 11/21 (2)
- ► 10/31 - 11/07 (2)
- ► 10/03 - 10/10 (3)
- ► 09/26 - 10/03 (2)
- ► 09/19 - 09/26 (2)
- ► 09/12 - 09/19 (2)
- ► 08/29 - 09/05 (3)
- ► 08/22 - 08/29 (1)
- ► 07/04 - 07/11 (1)
- ► 06/27 - 07/04 (1)
- ► 06/20 - 06/27 (2)
- ► 06/13 - 06/20 (2)
- ► 06/06 - 06/13 (3)
- ► 05/30 - 06/06 (2)
- ► 05/16 - 05/23 (2)
- ► 05/09 - 05/16 (2)
- ► 05/02 - 05/09 (2)
- ► 04/25 - 05/02 (2)
- ► 04/18 - 04/25 (2)
- ► 04/11 - 04/18 (2)
- ► 04/04 - 04/11 (2)
- ► 03/28 - 04/04 (2)
- ► 03/21 - 03/28 (1)
- ► 03/14 - 03/21 (3)
- ► 03/07 - 03/14 (3)
- ► 02/29 - 03/07 (3)
- ► 02/22 - 02/29 (5)
- ► 02/15 - 02/22 (2)
- ► 02/08 - 02/15 (3)
- ► 02/01 - 02/08 (3)
- ► 01/25 - 02/01 (3)
- ► 01/18 - 01/25 (3)
- ► 01/11 - 01/18 (4)
- ► 01/04 - 01/11 (1)
-
►
2003
(52)
- ► 12/21 - 12/28 (2)
- ► 12/14 - 12/21 (2)
- ► 12/07 - 12/14 (4)
- ► 11/30 - 12/07 (3)
- ► 11/23 - 11/30 (2)
- ► 11/16 - 11/23 (3)
- ► 11/09 - 11/16 (5)
- ► 11/02 - 11/09 (5)
- ► 10/26 - 11/02 (5)
- ► 10/19 - 10/26 (4)
- ► 10/12 - 10/19 (5)
- ► 10/05 - 10/12 (4)
- ► 09/28 - 10/05 (2)
- ► 09/21 - 09/28 (3)
- ► 09/14 - 09/21 (3)
0 comments:
Sendu inn athugasemd