2/14/2005
Mikið ofboðslega er ég svangur. Nú er klukkan sjö að morgni og ég hef legið andvaka í þrjá tíma, undir lokinn , svona í klukkutíma, var ég farinn að rifja upp allskyns mat sem ég borðaði á ævinni. Devitos. Indókína. Krúa Thai. Samlokurnar í Passignano. Rússneskur Kebab. Kjötbrauðin í Erevan. Soðnar SS pulsur. Pólski bakarinn á Istedegade! Minningar um góðan mat eru ómetanlegar. Því stend ég nú upp, það gengur ekki lengur að vera svangur! Það er synd!
Í gær var ég heppinn, þá gat ég opnað ísskápinn og hitað hakk og spagettí frá deginum áður. Ég var svo þakklátur. Ég man nefnilega þegar ég var ljóninja útí Afríku, og ljónahjörðin mín vildi ekkert með mig hafa. Þá þurfti ég dögum saman að hírast í köldum helli um nætur, og á hverjum degi þurfti ég að hafa sömu áhyggjurnar: "Ætli ég veiði mér antilópu fyrir hádegi? Ég nenni því enganveginn! Purr!". Það var enginn ísskápur í hellinum mínum, og oft þurfti ég að borða eðlur og híenur, afþví þessar helvítis antilópur áttu það til að vera svo assgoti styggar. En gott var nú samt að læsa vígtönnunum í litlu rassana á þeim, hlaupa þessar elskur uppi og "HRAMM!" þú ert mín. Ekki man ég þó eftir að hafa borið mikla kynhvöt til antilópa, en best fannst mér þó þegar forystuljónið stakk sér eitt sinn á bólakaf inn í skonsuna á mér, og öskraði svo hátt að öll sítrustrén við ánna skulfu og öll dýr merkurinnar hrukku í kút, þau vissu hvað var á seyði; Gummi ljón fékk það inní mig.
Svona er að muna eftir þessum fyrri lífum sínum. Annars hef ég undanfarið reynt að venja mig af ljótum kæk. Ég er alltaf að spjalla við einhverja sjónvarps- og útvarpsmenn í huga mér. Ég er yfirleitt að tjá mig um öll heimsins málefni og allir hlusta af mikilli athygli, ég er orðheppinn, klár og mælskur.
En nú reyni ég að koma í veg fyrir þessar hégómlegu hugsanir, og alltaf þegar ég geri mér grein fyrir hvað er á seyði, beini ég tali mínu til hundsins Heru. En undantekningalaust fipast mér flugið, vefst tunga um tönn og hreinlega gleymi um hvað ég var að tala.
Þetta segir mér bara, að drifkraftur visku minnar er sú að margir hlusti í einu. En ef það sem ég er að segja er ekki nógu gott fyrir hundinn minn, þá hljóta orð mín að hafa ígildi kúahlands og sullaorma.
Já, ég er ekki frá því að þessum orðaflaumi hér sé ofaukið!
Þessu ber að hætta.
Mjög fljótlega.
Bless.
Sjáumst síðar.
Aligator.
Blog Archive
-
►
2007
(3)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
►
04/22 - 04/29
(1)
-
►
06/24 - 07/01
(1)
-
▼
2005
(13)
- ▼ 02/13 - 02/20 (2)
- ► 02/06 - 02/13 (2)
- ► 01/23 - 01/30 (2)
- ► 01/16 - 01/23 (2)
- ► 01/09 - 01/16 (2)
-
►
2004
(94)
- ► 12/26 - 01/02 (2)
- ► 12/12 - 12/19 (2)
- ► 12/05 - 12/12 (3)
- ► 11/21 - 11/28 (3)
- ► 11/14 - 11/21 (2)
- ► 10/31 - 11/07 (2)
- ► 10/03 - 10/10 (3)
- ► 09/26 - 10/03 (2)
- ► 09/19 - 09/26 (2)
- ► 09/12 - 09/19 (2)
- ► 08/29 - 09/05 (3)
- ► 08/22 - 08/29 (1)
- ► 07/04 - 07/11 (1)
- ► 06/27 - 07/04 (1)
- ► 06/20 - 06/27 (2)
- ► 06/13 - 06/20 (2)
- ► 06/06 - 06/13 (3)
- ► 05/30 - 06/06 (2)
- ► 05/16 - 05/23 (2)
- ► 05/09 - 05/16 (2)
- ► 05/02 - 05/09 (2)
- ► 04/25 - 05/02 (2)
- ► 04/18 - 04/25 (2)
- ► 04/11 - 04/18 (2)
- ► 04/04 - 04/11 (2)
- ► 03/28 - 04/04 (2)
- ► 03/21 - 03/28 (1)
- ► 03/14 - 03/21 (3)
- ► 03/07 - 03/14 (3)
- ► 02/29 - 03/07 (3)
- ► 02/22 - 02/29 (5)
- ► 02/15 - 02/22 (2)
- ► 02/08 - 02/15 (3)
- ► 02/01 - 02/08 (3)
- ► 01/25 - 02/01 (3)
- ► 01/18 - 01/25 (3)
- ► 01/11 - 01/18 (4)
- ► 01/04 - 01/11 (1)
-
►
2003
(52)
- ► 12/21 - 12/28 (2)
- ► 12/14 - 12/21 (2)
- ► 12/07 - 12/14 (4)
- ► 11/30 - 12/07 (3)
- ► 11/23 - 11/30 (2)
- ► 11/16 - 11/23 (3)
- ► 11/09 - 11/16 (5)
- ► 11/02 - 11/09 (5)
- ► 10/26 - 11/02 (5)
- ► 10/19 - 10/26 (4)
- ► 10/12 - 10/19 (5)
- ► 10/05 - 10/12 (4)
- ► 09/28 - 10/05 (2)
- ► 09/21 - 09/28 (3)
- ► 09/14 - 09/21 (3)
0 comments:
Sendu inn athugasemd